
Nýverið festi Læknavaktin kaup á nýjum fjórhjóládrifnum Hyundai Santa Fe sem þjónustubíl fyrir læknavaktina. Aðspurðir sögðu fulltrúar læknavaktarinnar að þeir hefðu m.a. valið Hyundai vegna þess góða orðspors sem fer af Hyundai bílunum sem nú þegar eru í notkun hjá lögreglunni og heilsugæslunni. Hyundai bílarnir eru áreiðanlegir og traustir og hafa reynst vel við íslenskar aðstæður.